Gym800 logo

Hóptímar

Fjölbreyttir tímar fyrir mismunandi markmið og getustig. Kynntu þér tímana hér fyrir neðan og finndu það sem hentar þér.

Hóptímar eru innifaldir með gildum aðgangi að stöðinni.

Friday Night Lights er kraftmikill CrossFit tími þar sem stemningin fær að njóta sín – dúndrandi tónlist, diskóljós og skemmtilegar æfingar sem koma þér inn í helgina með krafti.

Í tímunum má búast við fjölbreyttum WOD æfingum og lyftinga-complexum þar sem áhersla er lögð á bæði ákefð og góða stemningu.

Tíminn er á dagskrá einn föstudag í mánuði kl. 17:30, frá október og fram í apríl.

Þjálfari: Jón Þorri.

Ketilbjöllutímarnir eru kraftmiklir og fjölbreyttir tímar þar sem unnið er með allan líkamann.

Hver og einn getur stjórnað álaginu með því að velja ketilbjöllu við hæfi, þannig að auðvelt er að aðlaga æfingarnar að eigin getu og reynslu.

Æfingarnar eru fjölbreyttar og áherslan getur verið mismunandi eftir tímum. Regluleg ketilbjölluþjálfun getur meðal annars stuðlað að bættri:

  • Hreyfigetu
  • Kjarnastyrk
  • Jafnvægi
  • Samhæfingu
  • Snerpu
  • Úthaldi
  • Styrk

Þjálfari: Árni Steinarsson – CFL1 þjálfari.

Krakkafit sameinar hreyfingu, leik og styrktarþjálfun á skemmtilegan og uppbyggilegan hátt.

Hver tími hefst á fjölbreyttum upphitunarleikjum og síðan er unnið með æfingar sem stuðla að betri:

  • Samhæfingu
  • Hreyfigetu
  • Liðleika
  • Jafnvægi
  • Úthaldi
  • Styrk

Krakkarnir læra bæði að vinna saman sem lið og að takast á við einstaklingsbundin markmið. Einnig er lögð áhersla á góða umgengni við æfingabúnað og frágang eftir tíma.

Þjálfarar: Sigrún Helga og Védís Reyn.

Mömmu morgnar eru ætlaðir konum sem vilja byggja sig markvisst upp aftur eftir meðgöngu og fæðingu.

Áhersla er lögð á örugga styrktarþjálfun, góða líkamsbeitingu og að endurheimta styrk og sjálfstraust í hreyfingu.

Æfingarnar eru aðlagaðar að hverri og einni og markmiðið er að skapa góðan grunn fyrir áframhaldandi þjálfun.

Krílin eru að sjálfsögðu velkomin með.

Í tímunum er unnið með tækni og styrk í ólympískum lyftingum, með áherslu á snörun og jafnhendingu ásamt undirbúningsæfingum sem styðja við lyfturnar.

Áhersla er lögð á góða framkvæmd, stjórn og stigvaxandi framför. Æfingar og þyngdir eru aðlagaðar að getu hvers og eins.

TABATA er kraftmikill tími byggður á klassíska TABATA kerfinu þar sem unnið er í 8 umferðum: 20 sekúndur í vinnu og 10 sekúndur í hvíld.

Tímarnir eru settir upp á fjölbreyttan hátt og hver og einn stjórnar álaginu með vali á þyngd og fjölda endurtekninga. Því henta tímarnir bæði byrjendum og lengra komnum.

TABATA er frábær leið til að bæta úthald, styrk og ná betri tökum á fjölbreyttum hreyfingum.

Unglingafit eru öflugir og fjölbreyttir tímar sem byggja upp góðan grunn fyrir unga iðkendur.

Áhersla er meðal annars lögð á:

  • Líkamsbeitingu
  • Jafnvægi
  • Snerpu
  • Úthald
  • Styrk

Tímarnir hafa verið starfræktir frá árinu 2016 og margir iðkendur hafa síðar tekið þátt í keppnum bæði hérlendis og erlendis.

Æft er þrisvar í viku, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 15:30–16:20.

Þjálfarar: Jón Þorri og Sigrún Helga.

WOD tímarnir eru klassískir CrossFit tímar þar sem unnið er með fjölbreyttar æfingar undir góðri ákefð.

Tímarnir reyna á styrk, úthald, samhæfingu og hreyfigetu og eru byggðir þannig upp að hver og einn geti aðlagað æfingarnar að sinni getu.

Það sem einkennir WOD tímana er ekki síður stemningin. Fólk kemur saman til að æfa, hvetja hvert annað áfram og upplifa þá félagslegu stemningu sem CrossFit er þekkt fyrir.