ÞJÁLFARAR

Þórunn Ösp Jónasdóttir

 Þórunn Ösp er hress og kát 25 ára stelpa frá Selfossi. Hún var að koma heim úr 5 mánaða heimsreisu og starfar nú sem stuðningsfulltrúi í Sunnulækjarskóla. Þórunn byrjaði í Crossfit árið 2018 og þá var ekki aftur snúið! Þar á undan hafði hún spriklað í frjálsum íþróttum og skottast um á hestbaki. Þórunn elskar kassahopp, burpees, toes to bar og útihlaup! Þórunn er peppari af guðs náð og hlakkar til að fá að píska ykkur öllum áfram.

 

Örvar Arnarson

Örvar hefur stundað ólympískar lyftingar frá 1995 og keppt töluvert. Var Íslandsmeistari í nokkrum þyngdarflokkum, svo sem -64,-69,-73,-77. Til gamans að geta hefur hann átt Íslandsmet í þessum flokkum.

Hann hefur þjálfað OLY í 10 ár hjá CrossFit Selfoss.

Hann starfaði sem bakari hjá Almari bakara og hefur mjög gaman af brauðum og kökum. í frítíma sínum stundar hann hestamennsku og útivist svo eitthvað sé nefnt.

Harpa Almarsdóttir

Harpa er 28 ára Selfyssingur sem hefur stundað Crossfit síðan 2013. Hún hefur þrisvar keppt á Íslandsmóti einstaklinga og einu sinni á Íslandsmóti liða. Jafnframt hefur hún keppt í ólympískum lyftingum.

Undanfarin þrjú ár hefur Harpa starfað sem þjálfari hjá Crossfit Hengli í Hveragerði ásamt því að vera flugfreyja hjá Icelandair.

Harpa er með BS í ferðamálafræði, BS í íþrótta- og heilsufræði og er einnig með leiðsögumannapróf.

Hörpu finnst fátt skemmtilegra en að taka sveitta æfingu í góðum félagsskap, hefur gaman að því að hvetja aðra og miðla sinni þekkingu og reynslu.

Jón Þorri Zar

Jón Þorri Zar er 17 ára og stundar nám við íþróttalínu FSU. Hann byrjaði í CrossFit fyrir 6 árum í unglingatímunum. Hefur keppt innanlands og erlendis með fínum árangri meðal annars er hann tvöfaldur íslandsmeistari. Hefur verið að vera að þjalfa hjá okkur on og off í sirka tvö ár. En er nú komin með fasta stöðu sem unglingaþjálfari og með síns föstu opnu tíma í töflu.

Gunnar Sigfús Jónsson

Gunnar er 39 ára Eyrbekkingur í húð og hár. Hann lifir fyrir hreyfingu og hefur hreyft sig mikið frá blautri barnsbleyju. Frá unga aldri hefur hann verið iðinn við knattspyrnuiðkun, ásamt þvi að æfa sund og körfuknattleik. Gunnar byrjaði að stunda CrossFit árið 2018 og hans uppáhalds er að hanga í stönginni og æfingar með eigin líkamsþyngd. Hann er menntaður þroskaþjálfi en starfar sem pípari og hefur unnið við það siðustu 6 ár. Auk þess sem hann hefur lokið CFL1 þjálfaranámskeiði. Hann er félagsvera og þykir fátt skemmtilegra en að vera í kringum fólk.